20. janúar 2012 01:22
Jóga á Regnboganum
Á fimmtudaginn kom Ingibjörg Harpa íþróttakennari í heimsókn til okkar og var með jógastund á Regnboganum. Stundin vakti mikla lukku og kattliðugir jógasnillingar beygðu sig og teygðu í allar áttir. Sjá myndir í myndasafninu.
meira...
19. janúar 2012 08:16
Kallakaffi í tilefni af bóndadegi
Á morgun, föstudag, bjóðum við öllum pöbbum, öfum, frændum og vinum í kaffi í leikskólanum milli kl. 15 og 16 í tilefni af bóndadegi. Vonumst til að sjá sem flesta.
meira...
10. janúar 2012 08:02
Vegna ófærðar og slæmrar veðurspár
Vegna ófærðar í sveitarfélaginu og slæmrar veðurspár kemst hluti starfsfólks leikskólans ekki til vinnu. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að taka tillit til þess og hafa börnin heima hafi þeir tök á því þar sem fáliðað verður í starfsmannahópnum í dag.
meira...
5. janúar 2012 12:29
Gleðilegt nýtt ár - 2012
Starfsfólk Tindaskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir samstarfið á liðnu ári.
meira...
4. janúar 2012 04:56
Tindaskóli er nýtt nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit
Á 11. fundi sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit var ákveðið að fræðslu- og skólanefnd og allir áheyrnarfulltrúar hennar skyldu vera dómnefnd í nafnasamkeppni um nýtt nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Nafnasamkeppnin var opin frá skólasetningu grunnskólasviðsins þann 23. ágúst til 1. nóvember 2011 og tók til nemenda og starfsmanna skólanna auk þess sem öllum íbúum Hvalfjarðarsveitar var gefinn kostur á að taka þátt í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins. Alls tóku 128 einstaklingar þátt í keppninni og sendu inn 231 nafnatillögu að 116 nöfnum. Hin tíu manna dómnefnd fjallaði um allar tillögur sem bárust í nafnasamkeppnina. Margar frábærar tillögur bárust og það var sannarlega úr vöndu að ráða hjá dómnefndinni við valið á nafninu.
meira...
29. desember 2011 01:46
Allt á kafi í snjó
Í morgun var leikskólalóðin okkar full af snjó og snjósköflum. Við drifum okkur út og grófum snjóhús og snjógöng. Sjá myndir á myndasíðunni.
meira...
21. desember 2011 11:13
Starfsdagur 6. janúar
Hálfur starfsdagur verður í leikskólanum föstudaginn 6. janúar 2012. Þann dag lokar leikskólinn kl. 12:00.
meira...
15. desember 2011 01:55
Jólasveinn í heimsókn
Í morgun mætti jólasveinninn óvænt í heimsókn einmitt þegar börnin voru að dansa í kringum jólatréð. Jólasveinninn sýndi börnunum nokkur vel valin töfrabrögð og dansaði með þeim í kringum jólatréð. Að lokum galdraði hann fram mandarínur fyrir alla upp úr pokanum sínum. Börnin voru að sjálfsögðu mjög prúð og tóku vel á móti jólasveininum og ekki annað að sjá en að þau væru kát með heimsóknina. Myndir á myndasíðunni.
meira...